Ræktunarmarkmið
Heildarsvipur:
Glaður, kátur og þróttmikill veiðihundur, þéttvaxinn og sterklegur, vel vöðvafylltur og með góða heildarsamsvörun í byggingu. Hæð á herðakamb á að vera jöfn lengd þaðan að skottrót.
Einkenni:
Fjörlegur hundur með skottið sífellt á iði og er það dæmigert einkenni hans, sem endurspeglar gleði og ákafa, sérstakega þegar hann rekur slóð, alls óhræddur við þéttan kjarrgróður.
Lunderni:
Vingjarnlegur og blíður, en þó fullur af gleði og þrótti.
Höfuð:
Trýni kubbslegt með greinilegri ennisbrún mitt á milli snoppu og hnakka. Höfuðkúpan fagurmótuð og má hvorki vera of fínleg né of gróf. Kinnbein mega ekki vera áberandi. Nasir þurfa að vera nægilega opnar fyrir næmt lyktar- og þefskyn hundsins.
Augu:
Meðalstór en ekki útstandandi og má augnumgerð ekki vera opin,.litur brúnn eða dökkbrúnn, en aldrei ljós. Þó mega augu vera hnotubrún ef hundurinn er brúnn, brúnyrjóttur eða brúnflekkóttur, til að vera í samræmi við feldlit. Augnaráð blíðlegt og greindarlegt, en athugult, tært og fjörlegt.
Eyru:
Dropalaga og sett á höfuð í augnhæð og á fingerð eyrnablaðkan að ná að snoppu. Hárin eiga að vera löng, mjúk og fín, gljáandi og slétt.
Munnur:
Kjálkar sterklegir með jöfnu, lýtalausu og fullkomnu skærabiti, þ.e. tennur í efri kjálka skari þétt tennur í neðri kjálka og séu réttar og reglulegar.
Háls:
Miðlungslangur, vöðvafylltur og vel settur á fínlega hallandi bóginn. Húð á að liggja þétt á hálsi.
Framhluti:
Bógur hallandi og fínlegur. Fætur sterklegir, beinir og það stuttir að viðspyrna verði góð, en þó ekki svo stuttir að það hindri þann feikna dugnað sem vænta má af þessum veiðihundi.
Bolur:
Sterklegur og þéttur. Brjóstkassi vel mótaður og bringa djúp, en má hvorki vera of breið né of mjó að framan. Rifjahylki vel hvelft. Lendin stutt, breið, með fastri láréttri yfirlínu sem er hallandi frá afturenda lendarinnar að skottrót.
Afturhluti:
Breiður, vel hvelfdur og vöðvafylltur. Fætur sterklegir, hnjáliðir vel vinklaðir; ekki of hár að hælliði svo góð viðspyrna náist.
Loppur:
Sterklegar með þykkum þófum, álíkar kattarloppum.
Skott:
Ásett aðeins neðar en yfirlína baks. Örlítið bogið, hófsamlega langt, í réttu hlutfalli við skrokk og gefa almennt útlit í jafnvægi; helst ekki að ná niður fyrir hækil. Sterkt við rót og mjókkandi að fíngerðum enda; liðað í samræmi við feld. Verður að iða glaðlega, og ekki borið hærra en bak og alldrei svo lágt eins og til að gefa til kynna kjarkleysi.
Gangur/hreyfing:
Sterkleg með góðri spyrnu og yfirferð.
Feldur:
Sléttur og silkimjúkur, aldrei stríðhærður eða of liðaður, ekki of mikill og ekki hrokkinn. Nægar fjaðrir á framfótum, bol og afturfótum ofan hælliðs.
Litur:
Einlitir: Svartur, rauður, gullinn, súkkulaðibrúnn (liver), svartur & tan, súkkulaðibrúnn & tan. Ekkert hvítt leyft utan lítill blettur á bringu.
Mislitir:
Tvílitir: Svartur og hvítur; rauður og hvítur; súkkulaðibrúnn og hvítur; sítrónugulur og hvítur. Allir þessir litir geta verið með eða án depla.
Þrílitir: Svartur, hvítur og gulur; súkkulaðibrúnn, hvítur og gulur.
Roan: Blue roan; orange roan; liver roan; lemon roan; blue roan og tan; liver roan og tan.
Allir aðrir litir eða merkingar eru óæskilegir í tegundinni.
Stærð:
Hæð: hundar 39-41 cm, tíkur 38-39 cm. Þyngd á bilinu 13-14.5 kg.
Gallar:
Öll frávik frá ofangreindri lýsingu skal líta á sem galla og dæmast í nákvæmlega réttu hlutfalli að því marki sem breytingin er frá ræktunarmarkmiðinu.
Athugið:
Hundar eiga að hafa tvö eðlileg eistu
að stærð og lögun og rétt staðsett.